Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 08. október 2021 10:30
Victor Pálsson
Pogba: Sjáum til eftir tímabilið
Mynd: Getty Images
Paul Pogba hefur gefið í skyn að hann gæti vel verið á förum frá Manchester United eftir tímabilið er hann verður samningslaus.

Pogba hefur spilað með Man Utd undanfarin fimm ár en hann var áður á mála hjá Juventus og er vinsæll þar á bæ.

Juventus ku hafa áhuga á því að fá Pogba aftur en hann má byrja að ræða við ný félög strax er nýtt ár hefst.

Pogba spilaði með Frökkum í 3-2 sigri á Belgum í Þjóðadeildinni í gær og ræddi við blaðamenn eftir þann leik.

„Ég er alltaf að ræða við fyrrum liðsfélaga mína, Juan Cuadrado, Paulo Dybala... Nú er ég leikmaður Manchester United og á eitt ár eftir af samningnum. Svo sjáum við til,“ sagði Pogba.

„Ég vil enda tímabilið vel og svo sjáum við hvað gerist.“
Athugasemdir
banner