Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 08. október 2021 12:30
Hafliði Breiðfjörð
Steve McManaman áritar í Jóa útherja á morgun
Steve McManaman
Steve McManaman
Mynd: Getty Images
Steve McManaman, sem verður hér á landi um helgina í boði Liverpoolklúbbsins á Íslandi, verður í Jóa útherja í Ármúla á laugardaginn, 9. október, og gefur áritanir.

Áritunin hefst klukkan ellefu og stendur í um klukkustund. Á þeim tíma verður hægt að koma með hvað sem menn vilja að kappinn áriti. Þetta er einstakt tækifæri til að fá áritun frá goðsögn hjá Liverpool FC.

Við minnum fólk á að koma með skriffæri sem hæfa því sem á að árita.

Jói útherji á til treyjur og fleira Liverpool dót fyrir þau sem vilja næla sér í leiðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner