Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 08. október 2021 09:30
Victor Pálsson
Wilshere æfir með Arsenal
Mynd: Getty Images
Jack Wilshere, fyrrum leikmaður Arsenal, er nú að æfa með félaginu er hann leitar sér að nýju liði.

Þetta staðfesti Arsenal á Twitter-síðu sinni í gær en Wilshere er einnig að vinna sér inn þjálfararéttindi.

Wilshere er uppalinn hjá Arsenal en var síðast á mála hjá Bournemouth þar sem samningur hans rann út í sumar.

Ekkert lið hefur enn náð að semja við leikmanninn sem hefur verið gríðarlega mikið meiddur á sínum ferli.

Arsenal birti myndir af Wilshere á æfingu eins og má sjá hér.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner