Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
banner
   mið 08. nóvember 2017 17:37
Elvar Geir Magnússon
Doha
Kári um fyrra mark Tékka: Ég á part af sökinni
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarjaxlinn Kári Árnason byrjaði sem fyrirliði Íslands gegn Tékklandi í vináttulandsleik í Katar í dag. Kári spilaði fyrri hálfleikinn í hitanum í Doha.

Leikurinn endaði með 2-1 sigri Tékka, en íslenska liðið fékk færi til þess að ná í jafntefli eða sigur úr leiknum.

„Það er leiðinlegt að tapa þessum leik, við áttum skilið meira þó þetta hafi ekki verið frábært. Við sköpuðum nægilega mikið af færum til að vinna þetta," sagði Kári eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  2 Tékkland

Fyrra mark Tékka í leiknum af með íslensku yfirbragði, en það kom eftir langt innkast. Kári var að dekka leikmanninn sem skoraði.

„Ég á part af sökinni í því," sagði Kári um fyrra mark Tékka.

„Ég bjóst ekki við því að hann (boltinn) myndi fara yfir þá og hann dettur og ég reyni að setja hnéið í hann og geri það. En hann er mættur með fótinn og ég hnjá-a hann í löppina á honum og hann skorar. Þetta var ekki alveg nógu gott."

Íslenska landsliðið er ekki þekkt fyrir að vinna alla sína vináttulandsleiki, en það er ekki endilega slæmt.

„Þetta hefur breyst frá því í gamla daga þegar við unnum alla vináttulandsleiki og töpuðum mótsleikjum. Ég myndi frekar kjósa að vinna mótsleikina og tapa hinum."

„Við ætluðum samt engu að síður að vinna í dag."
Athugasemdir
banner
banner