Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   mið 08. nóvember 2017 17:58
Elvar Geir Magnússon
Doha
Ólafur Ingi: Hefur verið törn hjá þessum hóp
Icelandair
Ólafur Ingi Skúlason.
Ólafur Ingi Skúlason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Ingi Skúlason tók við fyrirliðabandinu í hálfleik þegar Ísland tapaði 1-2 gegn Tékkum í Doha í dag. Ólafur byrjaði leikinn og spilaði stærstan hluta.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  2 Tékkland

„Tilfinningin er súrsæt. Við töpuðum en sköpuðum helling af færum. Við áttum að ná allavega jafntefli, það hefðu verið sanngjörn úrslit" sagði Ólafur fljótlega eftir leik.

„Við byrjuðum ágætlega en svo datt aðeins botninn úr þessu hjá okkur. Við vorum í smá vandræðum með þá en þetta er mjög gott lið."

„Mér fannst við halda boltanum betur í seinni hálfleik, við lokuðum betur á þá og náðum að skapa færi. Heilt yfir fannst mér leikurinn koma ágætlega út."

En burtséð frá leiknum sjálfum, er dvölin í Katar ekki að gera hópnum gott?

„Ekki spurning. Það er frábært að koma hingað og það er engin pressa. Það hefur verið törn á þessum hóp í langan tíma og kærkomið að fá tvo leiki þar sem ekki allt er undir. Við getum slakað vel á milli leikja og rætt málin í rólegheitum. Svo er gott að fá sól og blíðu í kroppinn."

Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner