Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 08. nóvember 2018 21:01
Brynjar Ingi Erluson
Welbeck borinn af velli - Óttast að hann verði lengi frá
Danny Welbeck var sárþjáður á vellinum áður en hann var borinn af velli
Danny Welbeck var sárþjáður á vellinum áður en hann var borinn af velli
Mynd: Getty Images
Danny Welbeck, framherji Arsenal, var borinn af velli í leik liðsins gegn Sporting Lisbon í Evrópudeildinni í kvöld.

Welbeck var í byrjunarliði Arsenal á Emirates-leikvanginum í kvöld en fór meiddur af velli á 29. mínútu.

Stephan Lichtsteiner átti fína fyrirgjöf frá hægri og reyndi Welbeck að koma knettinum á markið með skalla en lenti afar illa. Viðbrögð leikmanna gáfu það í skyn að meiðslin eru af alvarlegum toga.

Hann var borinn af velli og ekki er enn ljóst hversu alvarlegt þetta er en það er þó útlit fyrir að hann gæti verið lengi frá.

Hér fyrir neðan má sjá mynd sem birtist á Twitter en hann virðist lenda illa.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner