Serbneski varnarjaxlinn Branislav Ivanovic er ekki í hópi West Bromwich Albion sem er að spila við Tottenham þessa stundina.
Matheus Pereira er ekki heldur í hópi West Brom en þeir eru báðir fjarverandi eftir að hafa greinst með kórónuveiruna.
Þeir þurfa nú að fara í tíu daga sóttkví og fá nokkur neikvæð Covid-próf til að geta byrjað aftur að æfa með hópnum og spila fótboltaleiki.
Það er landsleikjahlé framundan og því munu Pereira og Ivanovic fá góða hvíld svo lengi sem þeir fá ekki alvarleg einkenni af veirunni.
Athugasemdir