Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 08. nóvember 2022 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Úrvalsdeildarslagur í deildabikarnum
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images

Það er úrvalsdeildarslagur á dagskrá í enska deildabikarnum í kvöld þegar Bournemouth og Everton eigast við.


Brentford fær á sama tíma heimaleik gegn Gillingham á meðan Leicester tekur á móti Newport County. Newport er þekkt fyrir að sigra gegn stórliðum í bikarkeppnum og vann meðal annars gegn Leicester í enska bikarnum fyrir tæpum fjórum árum síðan. Newport spilar í ensku D-deildinni.

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley eiga þá heimaleik við Crawley Town á meðan Bristol City mætir Lincoln City, MK Dons tekur á móti Morecambe og Charlton heimsækir Stevenage.

Þá eru einnig leikir á dagskrá í Championship deildinni og enska bikarnum, en þar eru aðeins neðrideildarlið mætt til leiks sem stendur.

Enski deildabikarinn:
19:45 Bournemouth - Everton
19:45 Brentford - Gillingham
19:45 Bristol City - Lincoln City
19:45 Burnley - Crawley Town
19:45 Leicester - Newport
19:45 MK Dons - Morecambe
19:45 Stevenage - Charlton Athletic


Athugasemdir
banner
banner
banner