Tippari af Austfjörðum gerði vel í getraunum þegar hann fékk 13 rétta á Enska getraunaseðilinn á laugardaginn og tæpar 5,3 milljónir í vinning. Tipparinn tippaði á opinn seðil og tvítryggði átta leiki og hafði einn leik þrítryggðan.
Tipparinn notar sjálfval, „en þegar mér líst ekki alveg á niðurstöðuna þá breyti ég“ sagði kátur tipparinn. Fjórir leikjanna voru með einu merki, þar á meðal leikur Man. City – Fulham en þar var tipparinn með táknið 1 fyrir sigur Man. City.
Það má því ætla að tipparinn hafi verið stressaður þegar Erling Haaland leikmaður Man. City tryggði liðinu sínu sigur og tipparanum tæpar 5,3 milljónir króna í vinning, með marki úr vítaspyrnu, einum leikmanni færri, í uppbótartíma leiksins.
Athugasemdir