Leicester City 0 - 2 Tottenham
0-1 Son Heung-Min ('45 )
0-2 Dele Alli ('58 )
0-1 Son Heung-Min ('45 )
0-2 Dele Alli ('58 )
Lokaleikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni var viðureign Leicester City og Tottenham.
Tottenham reyndist vera sterkari aðilinn í leiknum og sigraði með tveimur mörkum gegn engu marki heimamanna í Leicester.
Son Heung-Min skoraði frábært mark undir lok fyrri hálfleiks og Dele Alli bætti svo við öðru marki Tottenham þegar seinni hálfleikurinn var þrettán mínútna gamall.
Þægilegur 0-2 sigur Tottenham niðurstaðan sem tekur 3. sætið af Chelsea sem vann Manchester City fyrr í kvöld. Leicester situr hins vegar áfram í 9. sæti með 22 stig.
Athugasemdir