Kalvin Phillips, miðjumaður enska landsliðsins, fékk áhugaverða spurningu á fréttamannafundi í dag. Hann var beðinn um að fara í fótboltaútgáfuna af 'Ríða, drepa, giftast' leiknum vinsæla.
Spila, bekkja eða selja? Valkostirnir sem hann fékk voru Erling Haaland, Jude Bellingham og Kylian Mbappe. Hann þyrfti að spila einum þeirra, hafa annan á bekknum og selja þann þriðja.
Spila, bekkja eða selja? Valkostirnir sem hann fékk voru Erling Haaland, Jude Bellingham og Kylian Mbappe. Hann þyrfti að spila einum þeirra, hafa annan á bekknum og selja þann þriðja.
Phillips spilar með Bellingham hjá enska landsliðinu og er samherji Haaland hjá Manchester City. Hann mun mæta Mbappe á HM á laugardagskvöld.
„Guð minn góður! Ég myndi byrja Jude. Ég elska Erling en þó hann myndi koma inn af bekknum myndi hann samt skora þrennu. Ég myndi selja Mbappe því ég fengi líklega mestan pening fyrir hann," svaraði Phillips.
Hvernig er þitt val?
Athugasemdir