Aaron Ramsey, leikmaður Arsenal, gengur til liðs við Juventus næsta sumar en fréttastofa Sky á Ítalíu greinir frá þessu.
Ramsey er 28 ára gamall og hefur leikið með Arsenal frá árinu 2008 en meiðsli hafa sett strik í reikninginn á ferli hans.
Hann hefur þó verið lykilmaður þegar hann er heill en samningur hans við félagið rennur út næsta sumar.
Hann hefur verið í viðræðum við lið á borð við Barcelona, Paris Saint-Germain og Juventus en ákvörðun hans er ljós.
Fréttastofa Sky fullyrðir það að Ramsey sé búinn að skrifa undir samkomulag við Juventus og gengur hann til liðs við félagið í sumar. Samningurinn verður kynntur eftir leik Juventus og Milan næsta miðvikudag.
Juventus gerði svipað samkomulag við Emre Can á síðasta ári er hann var að renna út á samning hjá Liverpool.
Ramsey hefur unnið FA-bikarinn þrisvar sinnum á tíma sínum hjá Arsenal.
Athugasemdir