Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 09. janúar 2020 22:39
Brynjar Ingi Erluson
Bent segir Tottenham að kaupa Cavani
Edinson Cavani
Edinson Cavani
Mynd: Getty Images
Darren Bent, fyrrum framherji Tottenham og enska landsliðsins, segir að félagið þurfi að kaupa framherja í glugganum en hann segir félaginu að ná í Edinson Cavani til Paris Saint-Germain.

Enski landsliðsmaðurinn Harry Kane er meiddur og verður frá fram í apríl en Tottenham er ekki með mikla breidd í fremstu víglínu.

Heung-Min Son og Lucas Moura gætu þurft að leiða framlínuna en Bent hvetur Jose Mourinho, stjóra félagsins, að kaupa Cavani frá PSG.

Cavani verður samningslaus í sumar og er því falur fyrir lága upphæð í janúar.

„Spurs þarf að ná í framherja í þessum glugga og ekki bara mann sem mun sitja á bekknum þegar Harry Kane kemur til baka," sagði Bent.

„Þeir þurfa einn framherja núna, mann sem er klár. Við höfum áður talað um Cavani og það er ykkar maður. Farið og náið í hann strax! Ég veit að hann er farinn að eldast en hann er samt enn með gæði," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner