Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 09. janúar 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Bobby Duncan skiptir um umboðsmann
Bobby Duncan.
Bobby Duncan.
Mynd: Getty Images
Bobby Duncan, leikmaður Fiorentina, hefur skipt um umboðsmann en hann hefur samið við umboðsskrifstofuna SportsTotal.

Hinn 18 ára gamli Duncan var mikið í fréttunum í ágúst og september þegar hann fór frá Liverpool til Fiorentina.

Saif Rubie, umboðsmaður Duncan, fór mikinn í kringum félagaskiptin og reifst meðal annars heiftarlega við Jamie Carragher á Twitter.

Duncan hefur skorað þrjú mörk í átta leikjum með unglingaliði Fiorentina en hann gæti núna farið á láni til að fá meiri reynslu.

Saif Rubie fær ekki að koma nálægt þeim samningi heldur mun SportsTotal sjá um það. Á meðal leikmanna sem eru á mála hjá SportsTotal eru Toni Kroos og Marco Reus.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner