Sky Sports greinir frá því í dag að Christian Eriksen, leikmaður Tottenham, muni ekki ganga til liðs við Manchester United í þessum mánuði.
Eriksen verður samningslaus í sumar og líklegt er að hann rói á önnur mið núna í janúar eða í sumar.
Eriksen hefur áður verið orðaður við Manchester United og á dögunum komu sögusagnir um að hann fari þangað á tuttugu milljónir punda. Sky segir ekkert til í þeim sögusögnum.

Sky segir að Eriksen vilji spila utan Englands og líklegasti áfangastaðurinn í dag sé Inter á Ítalíu.
Athugasemdir