Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 09. janúar 2020 18:00
Elvar Geir Magnússon
Fredericks og Antonio á meiðslalista West Ham
Michail Antonio.
Michail Antonio.
Mynd: Getty Images
Ryan Fredericks, bakvörður West Ham, er meiddur aftan í læri og verður væntanlega frá í fjórar til sex vikur.

David Moyes, stjóri West Ham, greindi frá þessu á fréttamannafundi í dag.

„Hann segir að sér líði vel og verði ekki svona lengi frá. Ég vona að hann hafi rétt fyrir sér," segir Moyes.

West Ham heimsækir Sheffield United annað kvöld og Moyes fór yfir stöðuna á leikmannahópnum á fundinum.

„Michail Antonio er enn að glíma við meiðsli aftan í læri. Hann er ekki alveg klár enn. Jack Wilshere hefur verið í ræktinni og vinnur að endurkomu. Ég veit ekki nákvæmlega hvenær hann er væntanlegur," segir Moyes.

„Andriy Yarmolenko hefur farið í sprautumeðferð á læri og verður vonandi ekki of lengi frá."

Þá sagði Moyes frá því að West Ham væri ekki langt frá því að ganga frá skiptum írska markvarðarins Darren Randolph.

„Hann hefur verið að glíma við meiðsli og þarf að standast læknisskoðun. Ég er bjartsýnn á að það gangi eftir," segir Moyes um Randolph sem er 32 ára og er á leið til félagsins frá Middlesbrough.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner