Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 09. janúar 2020 16:15
Magnús Már Einarsson
Mjög ólíklegt að Bale fari frá Real Madrid í sumar
Mynd: Getty Images
Gareth Bale fer ekki frá Real Madrid í þessum mánuði að sögn umboðsmanns hans Jonathan Barnett.

Barnett segir við ESPN í dag að það sé einnig „mjög ólíklegt" að Bale fari frá Real Madrid næsta sumar.

Síðastliðið sumar virtist Bale á förum en félagaskipti hans til Kína klikkuðu á síðustu stundu.

Bale var ekki ofarlega í röðinni hjá Zinedine Zidane, þjálfara Real Madrid, síðastliðið sumar en hann hefur unnið sig upp stigann í vetur.
Athugasemdir
banner
banner