Barcelona er að vinna Atlético Madrid 2-1 í undanúrslitum Ofurbikars Spánar en leikurinn fer fram í Sádi Arabíu.
Það var markalaust í hálfleik hjá spænsku risunum en síðari hálfleikur byrjaði með látum.
Koke skoraði strax í upphafi síðari hálfleiks fyrir Atlético en þeir Lionel Messi og Antoine Griezmann svöruðu.
Messi skoraði með hægri fæti áður en Griezmann kom Barcelona yfir með skalla af stuttu færi. Aðeins mínútu áður en Griezmann skoraði þá skoraði Messi glæsilegt mark en það var dæmt ógilt.
Hægt er að sjá mörkin hjá Messi og Griezmann hér fyrir neðan.
Goal Messi pic.twitter.com/vlIIYSesX5
— 𝓢𝓱𝓮𝓻𝓪𝔃 (@Sh3raz01) January 9, 2020
📽 — What a cross from Alba! Goal Griezmann.pic.twitter.com/3JXlbygrR5
— BU Videos/Gifs (@BU_Videos) January 9, 2020
Athugasemdir