Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 09. janúar 2021 19:45
Aksentije Milisic
Chelsea blandar sér í baráttuna um Upamecano
Mynd: Getty Images
Chelsea hefur áhuga á varnarmanni RB Leipzig, Dayot Upamecano.

Þessi franski miðvörður er eftirsóttur af mörgum liðum og ljóst er að það verður hart barist um þennan leikmann í sumar.

Hinn 22 ára gamli Upamecano skrifaði undir samning við Leipzig á síðasta ári en í samningnum er klásúla sem hleypir Upamecano burt fyrir 40 milljónir punda.

Real Madrid, Barcelona og Bayern Munchen hafa öll áhuga á leikmanninum og nú hefur Chelsea bæst við í slaginn. Þá hefur leikmaðurinn einnig verið orðaður við Arsenal, Manchester United og Liverpool.

Upamecano hefur spilað 87 leiki fyrir Leipzig frá árinu 2017 og skoraði þrjú mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner