sun 09. janúar 2022 21:00
Brynjar Ingi Erluson
Stjóri Forest: Fannst við eiga þetta skilið
Leikmenn Nottingham Forest fögnuðu af innlifun með stuðningsmönnunum
Leikmenn Nottingham Forest fögnuðu af innlifun með stuðningsmönnunum
Mynd: Getty Images
Steve Cooper, stjóri Nottingham Forest, var í skýjunum með frammistöðu liðsins í 1-0 sigrinum á Arsenal í enska bikarnum í kvöld.

Lewis Grabban skoraði eina mark leiksins á 83. mínútu eftir að hafa komið inná sem varamaður en Cooper fannst allt ganga upp í leiknum.

„Mér fannst við eiga þetta skilið. Við mættum mjög góðu liði og vorum með klárt leikplan. Við vildum vera hugrakkir í pressunni og náð þeim í skyndisóknunum og þannig skoruðum við markið."

„Ég er mjög svo stoltur af strákunum og ánægður með frammistöðuna. Það er geggjað að komast áfram og vonandi hafa leikmennirnir loksins trú á því sem við erum að gera."

„Hann er fyrirliði félagsins. Hann er með reynslu og við erum í þessu saman svona ef ég tala um leikjaálag og annað. Við settum hann inná og hann skoraði."

„Þetta er leikur sem okkur mun hlakka til að spila. Ég veit ekki hvenær hann fer fram en við þurfum að undirbúa okkur núna fyrir Millwall,"
sagði Cooper.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner