Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 09. febrúar 2019 15:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Leeds jafnaði á 101. mínútu
Mynd: Getty Images
Middlesbrough 1 - 1 Leeds
1-0 Lewis Wing ('47 )
1-1 Kalvin Phillips ('90 )

Fyrsti leikur dagsins í Championship-deildinni á Englandi og lyktaði honum með dramatísku jafntefli.

Lewis Wing skoraði fyrsta mark leiksins í upphafi seinni hálfleiks og virtist það ætla að vera sigurmarkið. Þangað til á 101. mínútu er Kalvin Phillips jafnaði fyrir Leeds. Það var mikill viðbótartími eftir atvik á varamannabekk Leeds. Kalla þurfti til sjúkraliða.

Eftir að hafa unnið sjö leiki í röð frá 24. nóvember til 26. desember hefur Leeds verið að hiksta aðeins. Leeds hefur tapað fimm af síðustu átta leikjum sínum.

Middlesbrough er í fjórða sæti, en Leeds er komið á toppinn með einu stigi meira en Norwich.


Athugasemdir
banner
banner