Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 09. febrúar 2019 19:44
Arnar Helgi Magnússon
Championship: WBA sótti mikilvægan sigur í toppbaráttunni
Gayle skoraði eina mark leiksins
Gayle skoraði eina mark leiksins
Mynd: Getty Images
Stoke City 0 - 1 West Brom
0-1 Dwight Gayle ('25 )

Stoke og West Brom mættust í síðasta leik dagsins í ensku Championship deildinni.

Leikurinn var svo sannarlega ekki mikið fyrir augað en eina mark leiksins kom á 25. mínútu en það gerði Dwight Gayle eftir sendingu frá Ahmed Hegazy.

West Brom er í harðri baráttu um að komast upp í úrvalsdeildina á nýjan leik en eftir leiki dagsins situr liðið í 4. sæti deildarinnar fjórum stigum frá 2. sæti sem gefur öruggt sæti í úrvalsdeildinni að ári.

Stoke er í meiri vandræðum en liðið er í 17. sæti deildarinnar og hefur um lítið að keppa.

Leeds tyllti sér á topp deildarinnar í dag þegar liðið gerði jafntefli við Middlesbrough. Norwich getur endurheimt toppsætið en liðið á leik á morgun gegn Ipswich.
Athugasemdir
banner
banner
banner