Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 09. febrúar 2019 14:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fótbolta.net mótið: Víðir lagði Álftanes - Þróttur náði ekki í lið
Helgi Þór skoraði fyrir Víði.
Helgi Þór skoraði fyrir Víði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Álftanes 0 - 2 Víðir
0-1 Helgi Þór Jónsson
0-2 Ari Steinn Guðmundsson

Víðir lagði Álftanes að velli er liðin mættust í C-deild Fótbolta.net mótsins. Leikurinn var á Bessastaðavelli.

Helgi Þór Jónsson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Víði, en Ari Steinn Guðmundsson bætti við öðru og þar við sat. Ari Steinn var á láni hjá Víði frá Keflavík á síðasta tímabili, en ekki er staðfest hvort hann spili með Víði á næsta tímabili.

Víðir er með sex stig í riðli 2 og er á toppnum sem stendur. Álftanes er með fjögur stig. KV og Árborg mætast síðar í dag og þar þarf Víðir að treysta á að Árborg taki eitt stig eða fleira úr leiknum. Með sigri mun KV spila í úrslitum C-deildar, annars spilar Víðir til úrslita.

Í riðli 1 náði Þróttur V. ekki í lið gegn Vængjum Júpiters og hefur Vængjum verið dæmdur 3-0 sigur. Vængir eru því komnir upp fyrir Þrótt í efsta sæti riðilsins.

Vængir spila við Augnablik á mánudaginn í lokaleik riðilsins.



Athugasemdir
banner
banner