Frakkinn Anthony Martial var frábær þegar Manchester United og Fulham áttust við í ensku úrvalsdeildinni fyrr í dag.
Martial lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Paul Pogba en var síðan sjálfur á skotskónum þegar hann hljóp upp hálfan völlinn með boltann, fór framhjá nokkrum leikmönnum Fulham og setti boltann í netið.
Martial hefur fengið mikið lof undanfarnar vikur og er hann að spila sinn besta leik undir Ole Gunnar.
Gary Neville, fyrrum leikmaður liðsins og núverandi knattspyrnusérfræðingur á Sky, segir að Martial minni sig á Ronaldo.
„Það er ekki svo langt síðan að Ronaldo var að gera nákvæmlega það sama og þetta er keimlíkt. Þetta mark var í hæsta gæðaflokki og úrslitin setja Manchester United í frábæra stöðu," sagði Gary Neville eftir leikinn í dag.
Athugasemdir