Leicester City og Aston Villa eigast við í lokaleik 29. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í dag en leikurinn fer fram á King Power-leikvanginum og hefst klukkan 20:00.
Kelechi Iheanacho er fremstur en Jamie Vardy er á bekknum en hann hefur verið að glíma við meiðsli. Ben Chilwell er ekki í hópnum hjá Leicester.
Jack Grealish er á sínum stað í byrjunarliði Aston Villa og þá er Marvelous Nakamba í liðinu.
Byrjunarlið Leicester: Schmeichel, Söyüncü, Justin, Evans, Pereira, Praet, Barnes, Maddison, Albrighton, Ndidi, Iheanacho
Byrjunarlið Aston Villa: Reina, Elmohamady, Engels, Guilbert, Targett, Mings, Hourihane, Luiz, Grealish, Nakamba, Samatta
Athugasemdir