Spænska blaðið SPORT fullyrðir að Ernesto Valverde, þjálfari Barcelona, muni gefa Philipp Coutinho tækifæri í byrjunarliðinu í leiknum gegn Manchester United annað kvöld.
Leikurinn verður á Old Trafford og er fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Börsungar hafa fallið út í 8-liða úrslitum síðustu þrjú ár en þeir unnu keppnina 2015.
Ousmane Dembele er í hópnum hjá Barcelona en reiknað er með að hann byrji á bekknum. Frakkinn er að snúa aftur eftir meiðsli.
Coutinho hefur ekki náð að blómstra á þessu tímabili en fær væntanlega tækifæri í sóknarlínunni með Lionel Messi og Luis Suarez.

Líklegt byrjunarlið Barcelona: Marc-Andre ter Stegen; Sergi Roberto, Gerard Pique, Clement Lenglet, Jordi Alba; Sergio Busquets, Ivan Rakitic, Arthur; Philippe Coutinho; Luis Suarez, Lionel Messi.
Athugasemdir