Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. apríl 2019 13:00
Elvar Geir Magnússon
Carragher: Hazard er of góður fyrir Chelsea
Eden Hazard.
Eden Hazard.
Mynd: Getty Images
Gary Neville og Jamie Carragher segja að Eden Hazard sé besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar. Hazard átti stórleik í 2-0 sigrinum gegn West Ham í gær.

„Ég tel að Hazard þurfi að spila með liði eins og Real Madrid. Hann er of góður fyrir Chelsea í dag. Hann er það góður leikmaður," sagði Carragher.

„Hann þarf að fá félag eins og Real Madrid á ferilskrá sína."

„Hann er besti leikmaður deildarinnar. Ef við horfum á síðustu fjögur til fimm ár. Hann gerir hluti sem aðrir geta ekki framkvæmt."

Belgíski landsliðsmaðurinn hefur sterklega verið orðaður við Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner