Miðjumaðurinn Danny Drinkwater hjá Chelsea á ekki sjö dagana sæla.
Hann hefur aðeins spilað einn leik á þessu tímabili en það var tapleikurinn gegn Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn. Maurizio Sarri telur að hann henti ekki leikstíl sínum.
Nú berast fréttir af því að Drinkwater hafi klessukeyrt bílinn sinn undir áhrifum áfengis.

Drinkwater var í bifreiðinni ásamt ónefndri konu en atvikið átti sér stað aðfaranótt mánudags.
Drinkwater, sem á þrjá landsleiki fyrir England, hefur verið formlega ákærður fyrir ölvunarakstur.
Athugasemdir