Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 09. apríl 2019 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Eiginkona Icardi ánægð með Inter
Mauro og Wanda
Mauro og Wanda
Mynd: Getty Images
Wanda Icardi, eiginkona Mauro Icardi, er afar ánægð með ítalska félagið Inter en Mauro er farinn að spila á ný eftir erfiðar sex vikur án þess að byrja leik.

Fyrirliðabandið var tekið af Mauro eftir að samningaviðræður sigldu í strand í febrúar og neitaði leikmaðurinn að spila fyrir félagið eftir það.

Wanda átti stóran þátt í viðræðunum enda umboðsmaður Mauro og tjáði hún sig reglulega um ástandið. Inter náði hins vegar sáttum við Icardi og hefur hann nú gert eitt mark í síðustu tveimur leikjum.

„Þetta voru góð úrslit fyrir bæði lið. Við erum auðvitað ánægð sem fjölskylda að Mauro sé mættur aftur á völlinn og gera það sem hann gerir best," sagði Wanda.

„Hann mætti til Genoa og skoraði svo mark. Þetta var einn af bestu leikjum hans með Inter ef ég á að vera hreinskilin," sagði hún í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner