Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 09. apríl 2019 21:47
Arnar Helgi Magnússon
Kane mögulega frá út tímabilið - „Þetta er mjög sorglegt"
Mynd: Getty Images
Harry Kane fór meiddur af velli í fyrri leik Tottenham og Manchester City í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Kane meiddist í síðari hálfleik eftir að hafa lent í samstuði við Fabian Delph

„Þetta eru hrikalegar fréttir og í rauninni bara sorglegt, mjög sorglegt. Auðvitað vonar maður að þetta muni líta betur út en á horfðist og það kemur í ljóst á næstu dögum," sagði Pochettino eftir leikinn.

„Ég held að það sé augljóst að hann verði frá í einhvern tíma og við munum sakna hans. Mögulega út tímabilið."

Tottenham sigraði leikinn 1-0 en síðari leikurinn fer fram á Etihad-vellinum á miðvikudaginn í næstu viku.




Athugasemdir
banner
banner