Liverpool er komið í góða stöðu fyrir síðari leikinn gegn Porto í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Liverpool sigraði fyrri leikinn í kvöld á Anfield, 2-0, en Roberto Firmino og Naby Keita skoruðu mörk liðsins í fyrri hálfleik. Jurgen Klopp var sáttur í leikslok.
Liverpool sigraði fyrri leikinn í kvöld á Anfield, 2-0, en Roberto Firmino og Naby Keita skoruðu mörk liðsins í fyrri hálfleik. Jurgen Klopp var sáttur í leikslok.
„Ég er ánægður, mjög ánægður. Við skoruðum tvö mjög góð mörk og stjórnuðum leiknum frá upphafi," sagði Þjóðverjinn.
„Í síðari hálfleiknum datt takturinn aðeins úr leik okkar og við fórum að gera hluti sem að við ætluðum ekki að gera. Við þurfum að laga það fyrir síðari leikinn enda er þetta ekki búið."
„Liðsmenn Porto munu koma brjálaðir í síðari leikinn og við þurfum að vera tilbúnir undir það. 2-0 eru frábær úrslit og við erum augljóslega í betri stöðu en þeir."
Síðari leikur liðanna fer fram 17. apríl næstkomandi.
Athugasemdir