Myndband er komið í dreifingu þar sem stuðningsmaður Wolves lætur tvo unga stuðningsmenn Watford finna fyrir því að tilefnislausu eftir undanúrslitaleik í bikarnum.
Watford vann leikinn í framlengingu eftir dramatískan leik.
Lee Kennedy, sem starfar sem bílstjóri, tók upp myndbandið og segir að árásarmaðurinn hafi valið sér ung fórnarlömb sem væru auðveldari viðureignar.
„Ég tók eftir því að þessi einstaklingur hegðaði sér einkennilega og var greinilega í leit að vandræðum. Þess vegna byrjaði ég að mynda," segir Kennedy.
Einstaklingar sem eru í leit að slagsmálum og vandræðum virðast því miður vera óumflýjanlegur fylgifiskur enska fótboltans.

Athugasemdir