Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   þri 09. apríl 2019 18:40
Arnar Helgi Magnússon
Pólland: Böddi í bikarúrslit - Lék allan leikinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Böðvar „Löpp" Böðvarsson var í byrjunarliði Jagiellonia Bialystok sem að mætti Miedz Legnica í undanúrslitum pólsku bikarkeppninnar í kvöld.

Eftir markalausan fyrri hálfleik var það Taras Romanczuk, samherji Böðvars, sem að kom Jagiellonia í 1-0 eftir rúmlega stundarfjórðung í síðari hálfleik.

Liðsmenn Legnica jöfnuðu metin á 78. mínútu leiksins en Taras Romanczuk var aftur á ferðinni í uppbótartíma þegar hann tryggði Jagiellonia 2-1 sigur og farseðil í úrslitaleikinn.

Böðvar lék allar 90 mínúturnar í leiknum. Síðari undanúrslitaleikurinn er á morgun en þar mætast Raków Częstochowa og Legia Gdansk

Böðvar og félagar hans í Jagiellonia sitja í sjötta sæti pólsku úrvalsdeildarinnar.



Athugasemdir
banner
banner
banner