Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 09. maí 2020 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Maddison skoraði fimm í úrslitaleiknum gegn John Egan
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildin er í pásu meðan kórónuveirufaraldurinn herjar á Bretlandseyjar. Leikmenn hafa því tekið upp á því að keppa sín á milli í tölvuleiknum FIFA.

Portúgalski framherjinn Diogo Jota lagði Trent Alexander-Arnold í framlengdum úrslitaleik í lok apríl en nú var komið að James Maddison.

Maddison mætti John Egan, leikmanni Sheffield United, í úrslitum, eftir að þeir höfðu báðir komist í gegnum undanúrslitin með naumindum.

Maddison skipti um gír í úrslitaleiknum og gjörsamlega rúllaði yfir Egan. Hann stóð uppi sem sigurvegari með fimm mörkum gegn einu.

Hægt er að sjá útsendinguna hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner