Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 09. maí 2022 19:55
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deild kvenna: Viktorija afgreiddi KR í Vesturbæ
Viktorija Zaicikova átti stórleik í Vesturbænum.
Viktorija Zaicikova átti stórleik í Vesturbænum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR 0 - 2 ÍBV
0-1 Viktorija Zaicikova ('42)
0-2 Kristín Erna Sigurlásdóttir ('73)


KR tók á móti ÍBV í þriðju umferð tímabilsins í Bestu deild kvenna og var jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik.

Viktorija Zaicikova kom Vestmannaeyingum þó yfir skömmu fyrir leikhlé með laglegu marki þar sem hún lék á varnarmann áður en hún sneri boltann í fjærhornið og skoraði í stöngina og inn.

ÍBV tók völdin á vellinum í síðari hálfleik og komst nálægt því að tvöfalda forystuna áður en Kristín Erna Sigurlásdóttir tvöfaldaði forystuna, eftir frábæran undirbúning frá Viktoriju.

KR komst í hálffæri á lokakaflanum en virtist aldrei líklegt til að minnka muninn og lokatölur urðu 0-2. ÍBV er komið með fjögur stig eftir þrjár umferðir.

KR er áfram án stiga og þarf að fara að gera eitthvað í sínum málum.

Sjáðu textalýsinguna.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner