Pétur Pétursson þjálfari Vals var kátur eftir þriggja marka sigur Vals gegn Keflavík í Bestu deildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Valur 3 - 0 Keflavík
Fyrri hálfleikurinn var markalaus þar sem Valskonum gekk illa að skapa sér færi þrátt fyrir yfirburði á vellinum. Í síðari hálfleik setti Valur svo þrjú.
„Þetta var góður leikur hjá okkur, stelpurnar voru þolinmóðar í fyrri hálfleik því andstæðingarnir sátu rosalega aftarlega. Mér fannst við spila þetta mjög vel í seinni hálfleik eftir að við settum markið," sagði Pétur að leikslokum.
„Þetta var bara spurning um að koma réttum boltum fyrir markið sem við gerðum í seinni hálfleik. Um leið og fyrsta markið var komið þá var þetta pottþétt."
Valur er með sex stig eftir þrjár fyrstu umferðir sumarsins.
Viðtalið í heild má sjá hér fyrir ofan.