Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 09. júní 2022 23:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild: Njarðvík tapaði stigum - ÍR, Þróttur og KF með sigra
Njarðvík er ekki enn með fullt hús.
Njarðvík er ekki enn með fullt hús.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hewson gerði tvennu.
Hewson gerði tvennu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það voru fimm leikir spilaðir í 2. deild karla í kvöld. Njarðvík tapaði stigum í fyrsta sinn í sumar er þeir fengu Hauka í heimsókn.

Njarðvík komst tvisvar yfir í leiknum en Haukarnir gáfust ekki upp og þeim tókst að jafna metin á 87. mínútu til að taka stig heim. Njarðvík er áfram á toppnum en það eru bara þrjú stig í Völsung og Ægi. Þau lið mætast svo á laugardag.

ÍR-ingar og Þróttarar unnu bæði sinn annan leik í röð í kvöld. ÍR fór með sigur af hólmi gegn botnliði Reynis, sem er enn án stiga eftir sex leiki, og Þróttur vann heimasigur gegn Víkingi Ólafsvík þar sem Sam Hewson gerði tvö mörk.

KF vann sinn fyrsta sigur í sumar er þeir burstuðu Magna, 4-0. KF hafði gert jafntefli í fjórum leikjum og tapað einum fyrir leikinn í kvöld. Magnamenn eru núna búnir að tapa stórt í tveimur leikjum í röð.

Þá gerðu Höttur/Huginn og KFA jafntefli þar sem Rafael Victor jafnaði metin fyrir heimamenn í uppbótartímanum. Höttur/Huginn er með fimm stig í áttunda og KFA er með þrjú stig í tíunda sæti.

ÍR 2 - 1 Reynir S.
1-0 Bergvin Fannar Helgason ('12 )
1-1 Ivan Prskalo ('64 )
2-1 Bergvin Fannar Helgason ('82 )

Höttur/Huginn 2 - 2 KFA
0-1 Abdul Karim Mansaray ('3 )
1-1 Hjörvar Sigurgeirsson ('20 )
1-2 Abdul Karim Mansaray ('25 )
2-2 Rafael Alexandre Romao Victor ('90 )

Þróttur R. 3 - 0 Víkingur Ó.
1-0 Guðmundur Axel Hilmarsson
2-0 Sam Hewson
3-0 Sam Hewson

Njarðvík 2 - 2 Haukar
1-0 Oumar Diouck ('2 )
1-1 Máni Mar Steinbjörnsson ('30 )
2-1 Oumar Diouck ('53 )
2-2 Fannar Óli Friðleifsson ('87 )

KF 4 - 0 Magni
1-0 Þorvaldur Daði Jónsson ('24 )
2-0 Hrannar Snær Magnússon ('79 )
3-0 Auðun Gauti Auðunsson ('84 )
4-0 Atli Snær Stefánsson ('90 )
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner