Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 09. júní 2022 19:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Æfingaleikur: Þróttur Vogum lagði FH að velli
Unnar Ari Hansson.
Unnar Ari Hansson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH 0 - 1 Þróttur Vogum
0-1 Unnar Ari Hansson

Þróttur Vogum lagði FH í æfingaleik sem fór fram á Kaplakrikavelli núna í landsleikjaglugganum.

Bæði lið eru í fríi frá deildarkeppni í augnablikinu vegna landsleikjaverkefni.

FH er í neðri hluta Bestu deildarinnar en Þróttur er í botnsæti Lengjudeildarinnar. Það var samt sem áður Þróttur sem vann þennan leik, 0-1. Unnar Ari Hansson skoraði markið.

Þróttur er þessa dagana í þjálfaraleit eftir að Eiður Ben Eiríksson var rekinn. Brynjar Gestsson og Andy Pew stýra liðinu núna.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner