Mundo Deportivo segir að FIFA hafi ákveðið að Ekvador missi sæti sitt á HM í Katar þar sem landsliðið hafi spilað á ólöglegum leikmanni.
Ekvador hafnaði í fjórða sæti undankeppninnar í Suður-Ameríku en Síle, sem hafnaði í sjöunda sætinu, mun væntanlega fá sætið í staðinn.
Ekvador hafnaði í fjórða sæti undankeppninnar í Suður-Ameríku en Síle, sem hafnaði í sjöunda sætinu, mun væntanlega fá sætið í staðinn.
Síle kvartaði til FIFA og sagðist vera með sannanir þess efnis að Byron Castillo hafi spilað fyrir Ekvador undir fölsku fæðingarvottorði. Hann sé í raun Kólumbíumaður, fæddur í Tumaco.
Samkvæmt fréttum þá mun FIFA tilkynna formlega um ákvörðun sína á næstu dögum.
Ítalska landsliðið vonast til þess að FIFA láti efsta lið heimslistans, sem ekki hefur tryggt sér sæti á HM, fá sæti Ekvador. Evrópumeisturunum mistókst að komast á HM.
Athugasemdir