Björn Axel Guðjónsson leikmaður KV var hetja liðsins í kvöld en hann skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri gegn Aftureldingu. Seinna markið kom á 90. mínútu og var alveg hádramatískt.
Lestu um leikinn: KV 2 - 1 Afturelding
„Þetta er bara sturlað, bara frábær tilfinning. Þetta var einhvernvegin upp og niður leikur fyrir mig, ég gaf náttúrulega víti þarna í byrjun seinni. Svo bara sturlaður sprettur hjá Oddi ég þurfti nú ekki mikið að gera í fyrra markinu og svo bara geggjaður bolti hjá Einari (í seinna markinu) og já tilfinningin bara frábær. Þetta er búið að vera lengi að koma hjá okkur, erfið byrjun en þetta er bara komið á fullt núna, fyrstu þrjú stigin og bara áfram gakk.
Tímabilið hefur ekki byrjað vel hjá KV en þeir sóttu sín fyrstu þrjú stig í kvöld.
„Já heldur betur (gott að vera kominn með sigur). En spilamennskan er búin að vera fín við erum búnir að tala um það sjálfir að ekki missa hausinn. Þetta er búin að vera fín spilamennska, bara ekki dottið með okkur. Í dag gerði það bara og það er bara frábært."
Björn er einbeittur og leyfir sér ekki að setja hausinn í skýin eftir svona leik.
„Það er bara áfram gakk, næstu leikur er Grindavík eftir viku. Við stefnum bara á 3 stig þar það er ekki flóknara en það, tökum bara einn leik í einu.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.