Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 09. júní 2022 11:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Chelsea skoðar að bjóða í Sterling sem er tilbúinn að fara
Mynd: EPA
Chelsea er samkvæmt heimldum The Daily Telegraph að skoða möguleikann á því að bjóða í Raheem Sterling.

Í grein Telegraph er sagt frá því að toppfélögin í Evrópu trúi því að Sterling sé tilbúinn að fara í sumar. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við ensku meistarana.

Sagt er frá því að Chelsea sé það enska félag sem hafi sýnt Sterling mestan áhuga til þessa en Real Madrid á Spáni er einnig með augastað á Sterling.

Sterling er 27 ára enskur sóknarmaður en hann er ekki sá eini sem Chelsea er að skoða. Ousmane Dembele, Christopher Nkunku og Robert Lewandowski eru einnig á blaði og þá hefur City boðið Chelsea að kaupa Gabriel Jesus.
Athugasemdir
banner
banner
banner