Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 09. júní 2022 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Loksins réttað yfir Blatter og Platini - Of veikur til að bera vitni
Blatter er 86 ára gamall.
Blatter er 86 ára gamall.
Mynd: Getty Images

11 daga réttarhöld yfir Sepp Blatter og Michel Platini hófust í dag og var Blatter of veikur til að bera vitni á fyrsta degi.


Blatter og Platini hafa tapað ýmsum málum fyrir ýmsum dómum eftir að þeir hrökkluðust úr starfi sem forsetar FIFA og UEFA á sínum tíma.

Nú er komið að aðal dóminum þar sem þeir félagarnir eru kærðir fyrir svindl gegn FIFA sem er refsanlegt með fangelsisvist.

Platini var haldið yfir nóttu við yfirheyrslu sumarið 2019 en fyrir utan það hefur hvorugur þeirra setið í fangelsi. 

Verði þeir dæmdir sekir í réttarhöldunum í Genf gætu þeir átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsisvist hvor.


Athugasemdir
banner
banner
banner