Samkvæmt portúgölskum fjölmiðlum þá aukast líkurnar verulega á því að sóknarmaðurinn Darwin Nunez gangi í raðir Liverpool frá Benfica.
Talað er um 68 milljón punda tilboð sem gætu hækkað um 17 milljónir til viðbótar eftir ákvæðum.
Talað er um 68 milljón punda tilboð sem gætu hækkað um 17 milljónir til viðbótar eftir ákvæðum.
Viðræður Liverpool og Benfica gengu vel í gær og miða í rétta átt. Honum er ætlað að fylla skarð Sadio Mane sem virðist vera á leið til Bayern München.
Portúgölsku blöðin O Jogo og A Bola segja bæði að Liverpool hafi fyrst boðið 60 milljónir punda og 25 milljónir í mögulegar bónusgreiðslur en Benfica hafi hafnað því.
En þegar 68 milljóna punda boðið hafi komið þá hafi Benfica viljað skoða málið. Sagt er viðræður séu komnar vel á veg og mögulegt að samkomulag náist fyrir helgi. Þá er búist við því að Nunez geri fimm ára samning við Liverpool.
Nunez getur spilað á vinstri vængnum og einnig sem fremsti maður en hann skoraði sex mörk í Meistaradeildinni á liðnu tímabili. Tvö af þeim komu gegn Liverpool í 8-liða úrslitum. Hann skoraði alls 34 mörk fyrir Benfica í öllum keppnum á tímabilinu.
Athugasemdir