Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 09. júní 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn, Þýskaland og Belgía spila í kvennatreyjunum
Mynd: EPA

Karlalandslið Spánar mun spila í treyjum kvennaliðsins í næsta leik sínum í Þjóðadeildinni.


Þetta er gert til að vekja athygli á Evrópumóti kvenna sem hefst 6. júlí og verður haldið á Englandi.

Þjóðverjar og Belgar spiluðu í treyjum kvennaliðsins í síðustu leikjum sínum þar sem Þýskaland gerði jafntefli við England á meðan Belgía rúllaði yfir Pólland með sex mörkum gegn einu.

Spánn, Þýskaland og Belgía eru öll með treyjusamninga við Adidas.


Athugasemdir
banner