„Mjög góður leikur af okkar hálfu og mér fannst við eiga skilið að vinna,'' sagði Úlfur Arnar Jökulsson, þjálfari Fjölnis, eftir 2-2 jafntefli gegn Grindavík á útivelli í Lengjudeildinni.
Lestu um leikinn: Grindavík 2 - 2 Fjölnir
„Ég er ofboðslega svekktur að hafa ekki náð að vinna því þetta var einn af tveimur bestu leikjunum okkar í sumar. Við stjórnuðum leiknum allan tímann. Þetta er bara rán að vinna hann ekki."
„Mjög svekkjandi mörk sem við fáum á okkur, en á sama tíma er ég stoltur af leikmönnunum mínum og þessari frammistöðu sem þeir sýndu hér í dag.''
„Mér finnst fyrsta markið þeirra vera ólöglegt vegna bakhrindingu og svo eigum við að fá víti í lok leiksins. Þetta er helvíti fúlt hvað lítið féll með okkur í dag í þessum þáttum sem við stjórnum ekki."
Allt viðtalið má sjá hér að neðan.
Athugasemdir