Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 09. júní 2022 08:20
Ívan Guðjón Baldursson
Umboðsmaður Bale kannast ekki við forseta Getafe
Mynd: Getty Images

Angel Torres, forseti knattspyrnufélagsins Getafe sem er staðsett í Madríd, sagði á dögunum að sér hafi verið boðið að hefja samningsviðræður við Gareth Bale sem verður samningslaus um mánaðarmótin.


Markmið Bale er að halda sér í formi til að spila með Wales á HM í Katar í vetur og líklegt að hann vilji einungis skrifa undir skammtímasamning.

Bale hefur verið orðaður við Cardiff í heimalandinu og endurkomu til Tottenham en Torres blandaði Getafe við umræðuna með ummælum sínum.

Joshua Barnett, umboðsmaður Bale, var spurður út í þessi ummæli forsetans og sagði þau ekki eiga sér neina stoð í raunveruleikanum.

„Ég er ekki einu sinni með númerið hjá forseta Getafe...," svaraði hann.


Athugasemdir
banner
banner