Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. júní 2026 18:22
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Íslands: Tvær breytingar frá sigrinum
Eimskip
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ísland tekur á móti Spáni í lokaleik á fyrsta stigi undankeppni Evrópuþjóða fyrir HM.

Lestu um leikinn: Ísland 0 -  3 Spánn

Stelpurnar okkar spila einungis upp á stoltið þar sem þær eru búnar að tryggja sér þriðja sæti riðilsins, á meðan þær spænsku þurfa á sigri að halda til að tryggja toppsætið. Ísland getur því gert leið Spánverja að lokamótinu lengri og erfiðari með að ná jákvæðum úrslitum á Laugardalsvelli.

Byrjunarlið Íslands hefur verið kynnt og gerir Þorsteinn Halldórsson þjálfari tvær breytingar á liðinu sem lagði Úkraínu að velli á föstudaginn.

Diljá Ýr Zomers og Ída Marín Hermannsdóttir koma inn fyrir Emilíu Kiær Ásgeirsdóttur og Hildi Antonsdóttur sem setjast á bekkinn.

Byrjunarlið:
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
3. Sandra María Jessen
4. Glódís Perla Viggósdóttir (f)
6. Ingibjörg Sigurðardóttir
8. Alexandra Jóhannsdóttir
9. Diljá Ýr Zomers
10. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
17. Ída Marín Hermannsdóttir
18. Guðrún Arnardóttir
19. Sædís Rún Heiðarsdóttir
20. Thelma Karen Pálmadóttir

Varamenn:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
13. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
2. Arna Eiríksdóttir
5. Emilía Kiær Ásgeirsdóttir
7. Katla Tryggvadóttir
11. Birta Georgsdóttir
14. Hlín Eiríksdóttir
15. María Catharina Ólafsd. Gros
16. Hildur Antonsdóttir
21. Jelena Tinna Kujundzic
22. Linda Líf Boama
23. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
Slapp
banner
banner