Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. júní 2026 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kemur ekki til greina að selja Neves eða Vitinha
Mynd: EPA
Franskir fjölmiðlar greina frá því að Frakklands- og Evrópumeistarar Paris Saint-Germain hafi alls engan áhuga á að selja miðjumennina sína í sumar þrátt fyrir áhuga frá Real Madrid.

Madrídingar eru sagðir vera tilbúnir að bjóða rúmlega 150 milljónir evra í stjörnuleikmann í sumar og hafa Joao Neves og Vitinha verið nefndir til sögunnar.

Það er þó ekki í myndinni hjá PSG að selja þessa lykilmenn sem eiga þrjú ár eftir af samningum sínum.

Neves og Vitinha eru gjörsamlega ósnertanlegir og er engin raunhæf upphæð sem PSG myndi samþykkja til að selja þá. Líklegt er að Real Madrid þyrfti að bjóða 200 milljónir evra til að stjórnendur Parísarliðsins myndu hugsa sig um.

Markmiðið hjá PSG er að halda öllum lykilmönnunum sínum og reyna að vinna Meistaradeildina þriðja árið í röð á næstu leiktíð.

   05.06.2026 12:28
Segja að Olise sé leikmaðurinn sem Perez sé að tala um


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner