Það verður lítið um óvæntar fréttir af byrjunarliði Íslands gegn Argentínu í Auburn samkvæmt spá Fótbolta.net. Leikurinn hefst 01:00 næstu nótt.
Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson ætlar að sækja til sigurs og við búumst við sama leikkerfi og í undanförnum leikjum með blöndu af ákefðinni sem var í byrjunarliðinu í jafnteflinu gegn Frakklandi í október en Arnar sagði fyrir leik að hann vonaðist eftir svipaðri frammistöðu gegn Argentínu eins og íslenska liðið sýndi gegn Frakklandi.
Veðjað er á að Elías Rafn komi aftur inn í liðið, eins og á móti Frakklandi, á meðan Hákon Rafn, sem spilaði síðasta leik gegn Japan fær sæti á bekknum. Elías var ekki til taks í leiknum gegn Japan.
Hörður Björgvin og Daníel Leó halda sínum sætum í hjarta varnarinnar frá síðasta leik gegn Japan á meðan Guðlaugur Victor, sem var ekki í hópnum gegn Japan, kemur inn í hægri bakvörðinn í stað Dags Dan. Logi Tómasson kemur til með að halda sæti sínu í vinstri bakverði samkvæmt veðmáli Fotbolti.net.
Við reiknum með að Skagamennirnir Hákon Arnar og Ísak Bergmann myndi miðjuna með Albert þar fyrir framan sig en þeir voru allir þrír voru ekki til taks í leiknum gegn Japan.
Fyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson hefur ekki leikið með Íslandi frá leiknum gegn Kanada í mars síðastliðnum og fastlega er búist við því að hann leiði fremstu víglínu Íslands með Jón Dag og Mikael Egill á köntunum.





