Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. júní 2026 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Umboðsmaður Klopp: Þreyttur á þessu bulli
Mynd: EPA
Marc Kosicke, umboðsmaður Jürgen Klopp, er orðinn pirraður á sífelldum orðrómum um skjólstæðing sinn.

Hann svaraði á dögunum yfirlýsingu frá Enrique Riquelme, sem var í kosningabaráttu hjá Real Madrid, og í gær svaraði hann sterkum orðrómum sem segja Klopp vera á leið til Al-Ittihad í Sádi-Arabíu. Sagt er að Þjóðverjinn sé með risastórt tilboð á borðinu til að taka við þjálfun liðsins.

„Ég er orðinn þreyttur og pirraður á þessu bulli. Þetta er algjört rugl og þvættingur," sagði Kosicke í gær.

Klopp líður mjög vel í starfi sínu fyrir Red Bull samsteypuna og er þessa dagana að vinna í því að ráða inn þjálfara til RB Omiya Ardija í japanska boltanum, sem er eitt af mörgum félögum um allan heim sem eru í eigu Red Bull.

   06.06.2026 09:30
Umboðsmaður Klopp ósáttur með Riquelme

Slapp
banner
banner